Thursday, May 28, 2009

Télépopmusik

Rakst á þessa hljómsveit fyrir hreina tilviljun um daginn og er að fíla þetta í botn. Efsta lagið er ég örugglega búin að spila svona þúsund sinnum á síðustu dögum og lag númer 2, Ghost Girl, er búið að taka við sem mest spilaða lagið hérna heima. Telepopmusik slæst því í hóp nýuppgötvaðra hljómsveita hér á bæ en stendur út sem eflaust ein af bestu hljómsveitunum í þeim hópi. Þeir eru þekktir sem Telepopmusik en skrifa það sjálf Télépopmusik, enda franskt tríó hér á ferð. Njótið vel!


Just Breathe


Ghost Girl



Close

Wednesday, May 20, 2009

Nokkur lög...

...Sem eru í uppáhaldi hjá mér í augnablikinu. Sum eru ný, sum eru gömul, sum eru róleg, önnur ekki - þetta eru bara lög sem ég er búin að vera að hlusta mikið á síðustu daga


Bat For Lashes - Daniel


Radiohead - All I Need


Beck - Youthless



Tool - The Pot


Annars á ég eflaust eftir að gera óvenjulega mikið af bloggi næstu daga þar sem ég ligg heima eftir hálskirtlatöku sem var í gær. Ekki gaman!

Tuesday, May 19, 2009

Late Night Alumni

Ég var að finna aðra góða hljómsveit!! Þetta er nú aðeins öðruvísi en Dillinger Escape Plan, þetta er mjög róleg, tjilluð elektró tónlist með flottum söng. Ég mæli með þessu fyrir alla !!


Empty Streets


Sunrise Comes Too Soon


Beautiful

http://www.myspace.com/latenightalumni