Þessi rökræða á ekki einu sinni skilið svar. Ég held að það sé öllum þenkjandi mönnum ljóst að maður á að hlusta á þá tónlist sem kveikir í manni og að allir hafa mismunandi smekk. Metalhausar og aðrir "minnihlutahópar" vilja halda því fram að "hnakkarnir" séu þröngsýnir af því þeir vilja ekki heyra rokk, heldur bara eina týpu af tónlist, þegar að tónlistaralætur eins og ég sjáum það augljóslega að þröngsýnin er á báðum bógum. Metalhausar eru með þröngsýnasta fólki sem ég hef kynnst þegar það kemur að tónlist. Þá er ég að sjálfsögðu bara að tala um þá sem ég hef haft samskipti við enda er ég ekki mikið fyrir að setja alla undir einn hatt. En þetta er satt, langflestir metalhausar sem ég hef haft einhver samskipti við hata allt sem er ekki "þúst nekro kvlt black death doom satan metal" og líta ekki einu sinni við böndum sem eru í léttari kantinum, hvað þá raftónlist eða poppi. Fyrirgefið mér fyrir að sjá ekki skömmina í því að vera með Sepultura og Britney á sama playlista. Í tilefni dagsins er þetta Britney póstur.
Þetta lag er náttúrulega BARA gott.
Ég skora á alla þá sem hafa fest sig of mikið í einni tónlistarstefnu til að víkka sjóndeildarhringinn aðeins og skoða tónlist út fyrir sitt norm. Ég er ekkert að segja að allir eigi að fíla Britney eða þessar poppdívur, en það er engin synd fólgin í dansi, gott fólk.
It's Britney, bitch!!
It's Britney, bitch!!
