Á föstudag fór ég of course á Sódóma að sjá Jeff Who og Dikta. Ég vissi ekkert hverjir upphitunarbandið "Sing for me Sandra" væru og bjóst ekki við miklu en djöfulli voru þeir góðir! Rosalega skemmtilegt hljóð og svei mér þá ef þeir minna mig ekki bara rosalega mikið á Bloc Party, sem eru bara frekar skemmtilegir. Þetta var svona skemmtilegt háskólarokk, svona tónlist sem á að DANSA við, Íslendingar!! Af hverju standa allir bara og glápa á hljómsveitina. Jæja, ég, Raggi og Sigga dönsuðum af okkur stélin og það var stuð. Svo komu Jeff Who, og þó svo að ég hafi komið eiginlega bara út af Dikta, þá voru Jeff Who gjéééðveikir. Stuð allan tímann, góð músík og bara virkilega þétt, skemmtilegt rokk. Þeir eru greinilega að reyna að komast undan einhverju "one hit wonder" reputation, af því að þrátt fyrir endalaus öskur úr crowdinu "BARFLY!!!!!!!!!!" þá spiluðu þeir ekki Barfly fyrr en alveg í lok, og þá þurftum við fyrst að lofa þeim að kaupa nýju plötuna. Já ég skal kaupa hana, þetta voru það góðir tónleikar! Því miður fann ég ekki myndavélina mína á föstudagskvöld og er því ekki með neinar myndir frá tónleikunum, en ég læt hér inn myndbandið fyrir Barfly, lagið sem þeir vildu ekki spila, hehehe.
Svo komu aðalgaurarnir...sem ég var búin að bíða eftir allt kvöldið.....yndislegu fallegu Diktamenn, sem spiluðu vel og voru skemmtilegir, en það hefði mátt vera án alls vesens. Míkrófónar að detta út, hljóðfæri að detta út, ískur Satans af og til (æj þið vitið þetta tónleika ískur ííííííí og eyrun blæða). Þeir litu sjálfir ekkert út fyrir að vera að fíla þetta, dissuðu hljóðmanninn en stóðu sig vel!! Alltaf góðir, og voru kallaðir aftur upp á svið eftir að hafa klárað tónleikana, og þá tóku þeir geðveikt lag og án alls ískurs!!! Geðveikt að klára þetta svona vel. Þetta voru geðveikir tónleikar.
Þegar þeir voru búnir, og ég búin að taka hundraðþúsund myndir af þeim, þá fórum við á Sódóma Reykjavík, já, þriðja kvöldið í röð sem maður fer þangað, og þar var Agent Fresco að spila, og þeir eru náttúrulega bara geðveikir. Rosalega gott lagið þeirra "above these city lights", alveg svakalegt. Þetta er rosalega þétt band og söngvarinn er náttúrulega bara geðveikur!!!!!!!!
Hlustiði á lagið hér að ofan. Ég náði líka ágætri mynd af þeim köppum í Agent Fresco. Djöfull er ég að fíla þetta band.
Yessir.. Þannig þetta var bara súper góð helgi, helling af góðri tónlist alls staðar. Og eins og flestir vita sem þekkja mig þá elska ég tónlist, alla tónlist, hvaða tónlist sem er. Mikið fjör! Skál fyrir því.
http://www.myspace.com/singformesandra
ReplyDeleteÞEGAR ÉG SEGI GUS GUS SEGIÐ ÞIÐ SÖKKA!
ReplyDeletedjöfull var gaman:P
Já ég tók þátt í þessu og öskraði "sökka!!!" í hvert skipti.. Svo fór ég heim og hlustaði á Gus Gus.. Af því þeir sökka nefninlega ekki :P
ReplyDelete